Um félagið‎ > ‎

Félagsgjöld

Boldklubben Isborg innheimtir einu sinni á ári félagsgjöld og er tímabilið frá okt- okt. Markmið Isborgar er að bjóða upp á ýmiss konar hreyfingu fyrir alla fjölskylduna á eins hagstæðu verði og mögulegt er. Þar af leiðandi er félagsgjöldum í Isborg stillt í mikið hóf, eða 100 danskar krónur á manninn fyrir árið. Ef fleiri en tveir einstaklingar í heimili nýta sér starfsemi félagsins er einnig boðið upp á fjölskyldugjald að upphæð 200 danskra króna.