Um félagið

Íþróttafélagið Boldklubben Isborg var stofnað 1. janúar árið 2003 í Herlev af nokkrum einstaklingum sem allir áttu það sameiginlegt að hafa áhuga á íþróttum. Megin hvatinn að stofnun Ísborgar var þörf fyrir fyrir aðstöðu til íþróttaiðkunar innandyra yfir vetrartímann fyrir börn og fullorðna. Frumkvöðlar að stofnun Ísborgar eru Sverrir Óskarsson og Gísli Vilberg Hjaltason. Stefna Ísborgar er að vera í virku sambandi við meðlimi félagsins. Félagið getur lagt niður deildir innan félagsins ef ekki næg þátttaka næst. Eins tekur Ísborg til greina allar góðar hugmyndir að nýjum deildum. Ísborg er löggilt félag í Danmörku og er það nauðsynlegt til þess að geta á kost á því að fá úthlutaða æfingatíma hjá okkar sveitafélagi. Ísborg heldur formlegan aðalfund árlega þar sem fullgildir meðlimir geta kosið í stjórn og farið er yfir önnur hefbundin aðalfundarstörf. 

Til þess að vera fullgildur meðlimur í Ísborgu þarf að greið félagsgjöld árlega. Tímabilið er frá október - október og er gjaldið 100dkk fyrir einstkalings eða fjölskyldugjald 200dkk. 

Aðalstyrktaraðili Ísborgar er Icelandair og hefur verið unnið gott samstarf þar á milli til margra ára.