Spiladeild Ísborgar hefur starfað í nokkur ár. Megin markmið spiladeildarinnar er að stuðla að skemmtun félagsmanna í formi ýmiskonar spila. Stórt opið pókermót er haldið á vegum spiladeildarinnar a.m.k. einu sinni á ári. Einnig eru haldin BINGO kvöld svo dæmi séu nefnd.
Spiladeildin hefur á sínum snærum góðan stafla af spilapeningum sem lánaðir hafa verið til þeirra sem halda pókermót í heimahúsum eins og tíðkast hefur.
Tengiliður Ef þú hefur áhuga á að grípa í spil í góðra vina hópi, hafðu þá samband. Birgir Guðmundsson s: 23315597 |

