Boldklubben Isborg starfrækir knattspyrnudeild þar sem æft er allt árið. Yfir veturinn er æft tvisvar sinnum í viku innandyra en þegar fer að vora fjölgar æfingum í þrjár á viku. Mikið líf og fjör er í kringum starfsemi fótbolta deildarinnar og ýmsar uppákomur haldnar til þess að gera sér glaðari dag þegar við á. Má meðal annars nefna að Ísborg heldur í febrúar ár hvert innanhús knattspyrnumótið Icelandair Open í samstarfi við Icelandair. Mótið hefur verið haldið síðan árið 2005 og mæta ,,íslensk” lið frá Norðurlöndunum til leiks. Um og í kringum 100 einstaklingar taka þátt ár hvert. Ísborg tekur þátt í deildarkeppni og bikarkeppni á vegum Dansk Arbejder Idrætsforbund - DAI (http://www.daifodbold.dk) ár hvert. Þar er keppt í 7-manna bolta og eru leikirnir hátt í 25 á hverju tímabili. Aðra helgina í september ár hvert hefur Boldklubben Isborg að auki tekið þátt í hinu skemmtilega Klakamóti, þar sem íslensk knattspyrnulið á Norðurlöndunum heyja harða baráttu um Klakamótstitilinn. Ef þú hefur áhuga á að spila með okkur fótbolta og njóta um leið góðs félagsskapar, þá ekki hika við að láta sjá þig á æfingum hjá okkur. Tengiliður Allar frekari upplýsingar um boltann er hægt að nálgast með því að setja sig í samband við hann Einar: |


