| Um félagið |
|
|
|
| Written by Administrator |
| Sunday, 29 April 2007 19:05 |
|
Isborg var stofnað á fyrsta aðalfundi
félagsins 1. janúar 2003. Þá var kosinn fyrsta stjórn félagsins og
innra starfið afmarkað. Megin hvatinn að stofnun Isborgar var þörf á
íþróttaiðkun fyrir börn og þörf á aðstöðu fyrir fullorðna til að stunda
íþróttir inni á veturna. Frumkvöðlar að stofnun Ísborgar voru Sverrir
Óskarsson og Gísli Vilberg Hjaltason. Það er stefna Ísborgar að vera í sívirku sambandi við þá sem taka þátt. Þannig mun félagið leggja niður deildir ef áhugi eða þátttaka er ekki fyrir hendi. Eins mun félagið stofna nýjar deildir ef fram koma aðilar sem vilja verja tíma og metnað í skemmtilega hluti. Ef þú hefur hugmynd, vilt aðstoð til að stofna deild innan Isborgar eða annað, er fyrsta skrefið að hafa samband. Það eru miklir kraftar innan Isborgar til að veita aðstoð og hvatningu. Sveitarfélagið gerir miklar kröfur um form og ramma fyrir félagið. Þessi heimasíða er meðal annars ætluð til að koma til móts við slíkar óskir. Erfitt er að leigja sali eða fá aðstöðu ódýrt nema vera löggilt félag. Folkeoplysingslögin í Danmörku krefjast þess að þau félög sem fái stuðning frá sveitarfélaginu í formi íþróttasala séu opin, lýðræðisleg, inniheimti meðlimagjöld og haldi formlega aðalfundi. Markmið félagsins Félagið er íþróttafélag sem byggir á því að bjóða uppá skemmtilega samveru með góðri hreyfingu. Markmiðið er að vera með starf sem hentar mismunandi aldri og báðum kynjum. Lagt er kapp á að hlusta vel á félagsmenn og leggja niður deildir eða stofna nýjar, eftir áhuga og þörf hverju sinni. Virkni félagsins byggist á einstaklingum sem eru tilbúnir að skipuleggja starfið, halda utan um eitthvert starf félagsins (einhverja deild) og mæta í það sem þeir hafa áhuga á innan félagsins. Markmiðið er bjóða upp á aðstæður fyrir góða hreyfingu og góðan félagssakp. Allir standa jafnir í starfi félagsins, það er sniðið jafnt fyrir byrjendur og aðra, þ.e. aðallega þá sem vilja vera með og skemmta sér. Deildir félagsins Isborg rekur fimm deildir, þ.e. barnaskopp, fótbolta, körfubolta, blak og badminton. Starfsemi þessa má kynna sér með því að smella á hnappana hér fyrir ofan. Stefnt er að ýmiskonar uppákomum. Til dæmis er stefnt að ferðum fyrir börnin (fjölskylduna), grillveislum og fleiru. Hér á heimasíðu félagsins má fylgjast með því hvað er á döfinni hjá félaginu. Lög félagsins Starfsemi Isborgar fer eftir þeim ramma sem sett eru samkvæmt lögum félagsins. Eins eru ákvarðanir aðalfundar og félagsfunda mótandi um starf félagsins. Í þriðja lagi byggir starf félagsins á ýmsum kröfum frá sveitarfélaginu um hvernig svona félög eigi að vera (til að geta fengið sali hjá sveitarfélaginu) Sjá má lög félagsins á flipanum lög og reglur. Samstarfsaðilar Tíminn mun leiða í ljós hverjir samstarfsaðilar Isborgar verða. Í dag vert að nefna þrjá mikilvæga samstarfsaðila. Íþróttafélagið Guðrún í Kaupmannahöfn er mikilvægur og kærkominn samstarfsaðili. Bæði eru margir meðlimir Ísborgar líka þátttakendur hjá Guðrúnu (samstarf til að bjóða fleiri íþróttasali og æfingatíma) og eins er fyrirhugað samstarf kringum einstaka viðburði. Hér er heimasíða Guðrúnar FIG er mikilvægur samstarfsaðili. Þetta er félag íþróttafélaga í Gladsaxe kommune. Þeir veita okkur leiðbeiningar til að glíma við stjórnsýsluna hjá sveitarfélaginu og sjá um útdeilingu á öllum íþróttasölum á vegum sveitarfélagsins. Mikilvægt er að vera í góða sambandi við Arne Fogt sem er á skrifstofu FIG. Hér er heimasíða FIG Gladsaxe sveitarfélagið er mikilvægur samstarfsaðili þar sem þeir úthluta öllum íþróttasölum til okkar. Ekkert væri félagið án aðstöðu. Hér er heimasíða Gladsaxe Kommune. |






