• Forsíða
  • Isborg
  • Icelandair Open
  • Karlaskopp
  • Kvennaskopp
  • Barnaskopp
  • Tenglar
Dagskrá knattspyrnudeildar Ísborgar 12. - 30.maí PDF Print E-mail
Wednesday, 13 May 2009 16:48

Sælir drengir.

Þá kemur dagskráin næstu 3 vikurnar.

Fimmtudagurinn 14.maí: Æfing við Hammergårdsskole klukkan 17:00.

Laugardagurinn 16.maí: Leikur við Eisbären JURnited klukkan 13:30, háður á Klövermarken. Hittumst við centerið á Kagså eigi síðar en 12:30 og sameinumst í bíla. Laugardagsæfingin fellur þar af leiðandi niður. Viljum svo minna á að golfmót Ísborgar, sem ber heitið Móralskur, hefst klukkan 16:00 þennan dag. Hvetjum áhugasama að hafa samband við Vidda eða aðra stjórnarmeðlimi.

Þriðjudagurinn 19.maí: Æfing við Hammergårdsskole klukkan 17:00.

Fimmtudagurinn 21.maí: Æfing við Hammergårdsskole klukkan 17:00.

Laugardagurinn 23.maí: Æfing við Hammergårdsskole klukkan 10:00.

Þriðjudagurinn 26.maí: Heimaleikur gegn FC Bosna klukkan 18:00. Mæting uppi á völl Centerið eigi síðar en 17:30. Æfing fellur þar af leiðandi niður.

Fimmtudagurinn 28.maí: Æfing við Hammergårdsskole klukkan 17:00.

Föstudagurinn 29.maí: Leikur gegn Ama‘r Nationale á Klövermarken sem hefst klukkan 17:15. Hittumst við Centerið klukkan 16:15 og röðum í bíla.

Laugardagurinn 30.maí: Hugsanlega morgunæfing klukkan 10:00. Verður ákveðið á fimmtudagsæfingunni.

Erum afar kátir með þessa fínu mætingu sem hefur verið undanfarið á æfingar. Náðum meira að segja 15 leikmönnum á síðustu laugardagsæfingu þrátt fyrir að nokkra fasta spilara vantaði. Höldum þessu áfram svona í sumar!

Að lokum viljum við benda mönnum á facebook-grúppuna okkar, en gott er að melda sig inn í þá grúppu til að skrá sig á æfingar/leiki. Grúppan heitir „Isborg Boldklub – Fótbolti“. Endilega skráið ykkur!  

Mbkv,Óli

Last Updated on Wednesday, 13 May 2009 16:51