• Forsíða
  • Isborg
  • Icelandair Open
  • Karlaskopp
  • Kvennaskopp
  • Barnaskopp
  • Tenglar
Aðalfundur Ísborgar 2009 PDF Print E-mail
Wednesday, 11 March 2009 15:15

Aðalfundur íþróttafélagsins Boldklubben Ísborg verður haldinn föstudaginn 27. mars næstkomandi á barnum í Centerinu, Kagsåkollegíinu, og hefst fundurinn stundvíslega klukkan 20:00. Dagskráin er eftirfarandi: 

·        Atburðir Ísborgar á síðasta kjörtímabili, formaður Ísborgar.

·        Fjármál félagsins, gjaldkeri Ísborgar

·        Kosning stjórnarmeðlima.

·        Önnur mál  

Athygli skal vakið á því að núverandi stjórn hefur ákveðið að bjóða sig fram til áframhaldandi setu í stjórn Ísborgar. Núverandi stjórn Ísborgar er skipuð eftirfarandi einstaklingum: 

  • Formaður: Hafþór Hilmarsson
  • Gjaldkeri: Haraldur Daði Ragnarsson
  • Ritari: Ólafur Guðmundsson

 

Boðið verður upp á öl á meðan á fundi stendur.  

Meðlimir Ísborgar eru hvattir til að láta sjá sig! 

Með kveðju,

Stjórn Ísborgar

Last Updated on Wednesday, 11 March 2009 15:17