• Forsíða
  • Isborg
  • Icelandair Open
  • Karlaskopp
  • Kvennaskopp
  • Barnaskopp
  • Tenglar
Boldklubben Isborg
Aðalfundur Ísborgar 2009 PDF Print E-mail
Wednesday, 11 March 2009 15:15

Aðalfundur íþróttafélagsins Boldklubben Ísborg verður haldinn föstudaginn 27. mars næstkomandi á barnum í Centerinu, Kagsåkollegíinu, og hefst fundurinn stundvíslega klukkan 20:00. Dagskráin er eftirfarandi: 

·        Atburðir Ísborgar á síðasta kjörtímabili, formaður Ísborgar.

·        Fjármál félagsins, gjaldkeri Ísborgar

·        Kosning stjórnarmeðlima.

·        Önnur mál  

Athygli skal vakið á því að núverandi stjórn hefur ákveðið að bjóða sig fram til áframhaldandi setu í stjórn Ísborgar. Núverandi stjórn Ísborgar er skipuð eftirfarandi einstaklingum: 

  • Formaður: Hafþór Hilmarsson
  • Gjaldkeri: Haraldur Daði Ragnarsson
  • Ritari: Ólafur Guðmundsson

 

Boðið verður upp á öl á meðan á fundi stendur.  

Meðlimir Ísborgar eru hvattir til að láta sjá sig! 

Með kveðju,

Stjórn Ísborgar

Last Updated on Wednesday, 11 March 2009 15:17
 
Dagskrá Ísborgar veturinn 2008 - 2009 PDF Print E-mail
Monday, 20 October 2008 19:46

Sæl veriði

ATH! Uppfærð dagskrá Ísborgar!! Uppfært 4.nóvember.2008. 

Nú er fótboltadeildinni lokið í ár og endaði Ísborg í 5. sæti. Fyrirfram var stefnt á efstu 2. sætin en það hafðist ekki þetta árið. Gengur vonandi bara betur næsta ár.

Nú er því vetrardagskrá Ísborgar hafin. Boðið verður upp á innanhúsfótbolta, körfubolta, badminton, kvennaskopp og barnaskopp í vetur og eru æfingatímarnir sem hér segir:

Knattspyrna: Spilað er í Buddinge Skole tvisvar í viku, á mánudagskvöldum klukkan 21:¨20 - 23:00 og fimmtudagskvöldum klukkan 21:30 - 23:00.

Körfubolti: Æft er tvisvar í viku, á mánudögum í Buddinge Skole klukkan 19:00 - 20:20 og á föstudögum klukkan 18:00 í Grøndal Centret.

Badminton: Æft er einu sinni í viku í Buddinge Skole á mánudögum klukkan 20:20 - 21:20.

Barnaskopp: Farið er í leiki með börnum og fullorðnum á föstudögum klukkan 17:00 í Gladsaxe Skole.

Kvennaskopp: Æfingar í Egegård Skole klukkan 20:00 á miðvikudögum.

Við hvetjum svo alla sem áhuga hafa að láta sjá sig á æfingum í vetur.

kveðja,

Stjórn Ísborgar

 

 

Last Updated on Tuesday, 04 November 2008 14:05
 
<< Start < Prev 1 2 3 Next > End >>

Page 2 of 3