Nú hafa 11 lið skráð sig til leiks á hið árlega innanhúsmót Boldklubben Isborg í samvinnu við Icelandair. Herlegheitin hefjast stundvíslega klukkan 10:00 næstkomandi laugardag í Gladsaxe Sportcenter. Fyrir þá sem ekki verða þátttakendur í ár viljum við benda fólki á að hinir fínustu áhorfendapallar eru í húsinu svo auðvelt er að mynda góða stemmningu á laugardaginn. Hvetjum við því alla til að mæta og hvetja sitt lið áfram.
Frekari fréttir um úrslit mótsins verða að sjálfsögðu skrifaðir á þessa síðu eftir helgina.
Sjáumst hress á laugardaginn!
Boldklubben Isborg og Icelandair
Last Updated on Friday, 19 February 2010 00:43
Vetraræfingar hefjast í dag
Tuesday, 20 October 2009 10:01
Sæl veriði
Nú er fótboltasumrinu lokið að þessu sinni og náðu Ísborgardrengir 4. sætinu í deildinni. Viðunandi árangur þetta árið og stefnt að sjálfsögðu á betri árangur að ári.
Hefjast því innanhússæfingar í kvöld í Buddinge Skole en þær verða á eftirfarandi dögum:
Þriðjudögum klukkan 21:15 - 23:00 í Buddinge Skole
Fimmtudögum klukkan 21:30 - 23:00 í Buddinge Skole
Frekari upplýsingar um æfingatíma má nálgast með því að senda tölvupóst á
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Sjáumst svo hressir í kvöld í Buddinge Skole!
kv. Ritari götunnar
Last Updated on Tuesday, 20 October 2009 10:01
Dagskrá Ísborgar 08.September - 14.Október
Tuesday, 08 September 2009 14:14
Dagskrá Ísborgar næstu vikurnar er eftirfarandi:
Þriðjudagurinn 08.September: Æfing klukkan 17:00 á æfingasvæði Ísborgar.
Fimmtudagurinn 10.September: Æfing klukkan 17:00 á æfingasvæði Ísborgar.
Helgin 11.-13.September: Ísborgarmenn fara á Klakann í Odense og fellur þar af leiðandi laugardagsæfingin niður.
Þriðjudagurinn 15.September: Heimaleikur gegn Eisbären JURnited á heimavelli Ísborgar. Leikurinn hefst stundvíslega klukkan 18:00 og er því mæting ekki seinna en 17:30 á æfingasvæðið.
Fimmtudagurinn 17.September: Æfing klukkan 17:00 á æfingasvæði Ísborgar.
Laugardagurinn 19.September: Möguleg æfing klukkan 10:00 á æfingasvæði Ísborgar. Verður ákveðið á fimmtudagsæfingunni hvort af þessari æfingu verður.
Sunnudagurinn 20.September: Útileikur við FC Bosna í Valby. Leikurinn hefst klukkan 10:10 og því hittumst við við Centerið klukkan 09:15 og röðum í bíla.
Þriðjudagurinn 22.September: Æfing klukkan 17:00 á æfingasvæði Ísborgar.
Fimmtudagurinn 24.September: Æfing klukkan 17:00 á æfingasvæði Ísborgar.
Laugardagurinn 26.September: Æfing klukkan 10:00 á æfingasvæði Ísborgar.
Þriðjudagurinn 29.September: Síðasti heimaleikur Ísborgar á þessu tímabili á móti Ama‘r International. Leikurinn hefst klukkan 17:30 og er því mæting á æfingasvæðið eigi síðar en 17:00.
Fimmtudagurinn 01.Október: Æfing klukkan 17:00 á æfingasvæði Ísborgar.
Laugardagurinn 03.Október: Möguleg æfing klukkan 10:00 á æfingasvæði Ísborgar. Verður ákveðið á fimmtudagsæfingunni hvort af þessari æfingu verður.
Sunnudagurinn 04.Október: Útileikur á móti FC P-Starz á Kløvermarken. Leikurinn hefst stundvíslega klukkan 10:10 og er því mæting við Centerið klukkan 09:15 þar sem raðað verður í bíla.
Þriðjudagurinn 06.Október: Æfing klukkan 17:00 á æfingasvæði Ísborgar.
Fimmtudagurinn 08.Október: Æfing klukkan 17:00 á æfingasvæði Ísborgar.
Laugardagurinn 10.Október: Æfing klukkan 10:00 á æfingasvæði Ísborgar.
Þriðjudagurinn 13.Október: Hugsanleg æfing klukkan 17:00 á æfingasvæði Ísborgar. Verður ákveðið síðar hvort af æfingunni verður.
Miðvikudagurinn 14.Október: Síðasti leikurinn í deildinni í ár, útileikur á móti Fischer&Kerrn á Kløvermarken (væntanlega á gervigrasinu). Leikurinn hefst klukkan 17:15 og er mæting því við Centerið klukkan 16:15 þar sem raðað verður í bíla.
Eftir að deildinni líkur í ár færum við okkur inn í Buddinge Skole. Æfingatímar í vetur verða auglýstir betur síðar.
Kv. ÓliG
Last Updated on Tuesday, 08 September 2009 14:15
Icelandair Open 2010
Tuesday, 26 January 2010 19:42
Sælir drengir (og stúlkur)! Hið árlega innanhúsmót IcelandairOpen 2010 verður haldið hátíðlegt þann 20. febrúar næstkomandi í Gladsaxe Sportcenter í Kaupmannahöfn og eru skráningar að hefjast fyrir þátttökulið núna á næstum dögum. Mótið í fyrra heppnaðist gríðarlega vel og er stefnt á að endurtaka leikinn þetta árið, sjötta árið í röð!
Mótið hefst stundvíslega laugardaginn 20. febrúar klukkan 10 er dregið verður í riðla. Skömmu eftir það hefst mótið.
Stuðst verður við almennar innanhúsfótboltareglur, þó með nokkrum breytingum. Leikið verður á 2 battavöllum og eru 5 leikmenn frá hvoru liði inni á vellinum hverju sinni. Leyfilegt er að hafa 10 leikmenn í hverju liði og eru frjálsar skiptingar allan leiktímann. Notast verður við hina margrómuðu "Futsal" bolta sem eru sérhannaðir fyrir innanhúsknattspyrnu. Enn hefur lengd leikja ekki verið ákveðin en sú ákvörðun verður tekin þegar fjöldi liða liggur fyrir.
Verðlaunin verða í boði Icelandair en einnig er farandbikar fyrir efsta sætið í mótinu. Verðlaunaafhending hefst strax að loknum úrslitaleik mótsins en áætluð mótslok eru um klukkan 16:30.
Þátttökugjald er 100 danskar krónur á mann og innifalið í þeirri upphæð er öl og pizzur/samlokur á meðan á mótinu stendur.
Þess ber að geta að á laugardagskvöldinu 20. febrúar stendur Íslendingafélagið í Kaupmannahöfn fyrir hinu árlega þorrablóti og því ekki vitlaust að slá tvær flugur í einu höggi og ná bæði fótboltamóti og þorrablóti. Frekari upplýsingar um þorrablótið má finna á heimasíðu Íslendingafélagsins, www.islendingafelagid.dk
Frekari upplýsingar sem og móttaka skráninga í mótið eru veittar á
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Taka skal fram í skráningu heiti liðs og fjölda leikmanna í liði. Skráningu lýkur svo þriðjudaginn 16.febrúar næstkomandi.
Með von um góða skráningu,
Boldklubben Isborg og Icelandair
Last Updated on Tuesday, 26 January 2010 20:09
Dagskrá Ísborgar 11.ágúst - 08.september 2009
Tuesday, 11 August 2009 14:39
Sæl veriði.
Ákvað að setja inn á síðuna góðu dagskrána eins og hún lítur út hjá okkur í boltanum næstuvikurnar eða svo.
Dagskráin er sem hér segir:
Þriðjudagurinn 11.ágúst: Fyrsti leikur eftir sumarfrí, Boldklubben Isborg vs. FC Birkerød. Leikur hefst klukkan 18:00 og er mæting eigi síðar en 17:30 upp á æfingavelli. Hvetjum sem flesta að sjálfsögðu til að mæta og styðja Ísborgu
Fimmtudagurinn 13.ágúst: Æfing við Hammergårdsskole klukkan 17:00.
Laugardagurinn 15.ágúst: Æfing við Hammergårdsskole klukkan 10:00.
Þriðjudagurinn 18.ágúst: Útileikur við stórvini okkar í Tunellen. Leikurinn hefst klukkan 18:25 á íþróttasvæðinu á Kløvermarken, Amager. Hist verður við Centerið á Kagså klukkan 17:30 og sameinast í bíla.
Fimmtudagurinn 20.ágúst: Æfing við Hammergårdsskole klukkan 17:00.
Laugardagurinn 22.ágúst: Æfing við Hammergårdsskole klukkan 10:00.
Þriðjudagurinn 25.ágúst: Heimaleikur gegn B.K. Jyden. Leikurinn hefst klukkan 18:00 á æfingasvæðinu. Mæting í síðasta lagi klukkan 17:30.
Fimmtudagurinn 27.ágúst: Æfing við Hammergårdsskole klukkan 17:00.
Laugardagurinn 29.ágúst: Æfing klukkan 10:00 við Hammergårdsskole.
Þriðjudagurinn 01.september: Heimaleikur gegn FC Pain. Leikurinn hefst klukkan 18:00 og er mæting í síðasta lagi klukkan 17:30 á æfingasvæðinu.
Fimmtudagurinn 03.september: Æfing við Hammergårdsskole klukkan 17:00.
Laugardagurinn 05.september: Möguleg æfing klukkan 10:00 við Hammergårdsskole. Verður ákveðið á fimmtudagsæfingunni.
Sunnudagurinn 06.september: Útileikur gegn Cph. Hot Boyz á íþróttasvæðinu á Kløvermarken, Amager. Leikurinn hefst klukkan 10:10 og er mæting í Centerið á Kagså í síðasta lagi klukkan 09:15 þar sem sameinast verður í bíla.
Þriðjudagurinn 08.september: Æfing við Hammergårdsskole klukkan 17:00.