Laugardaginn 18.febrúar 2012 mun Boldklubben Isborg í samstarfi við Icelandair í Kaupmannahöfn standa fyrir Icelandair Open hraðmótinu í innanhúss knattspyrnu, áttunda árið í röð. Tilgangur Icelandair Open er að fá íslenska fótboltaáhugamenn í Skandínavíu og á Íslandi til að hittast, spila fótbolta og hafa gaman af.
Dagskrá mótsins er á þá leið að á laugardagsmorgninum 18.febrúar hittast liðin stundvíslega þar sem leikar hefjast klukkan 10:00 í Gladsaxe íþróttahúsinu. Dregið verður í riðla kvöldinu áður af óháðum aðila.
Stuðst verður við almennar innanhúsfótboltareglur, með nokkrum breytingum þó. Leikið verður með böttum og eru fimm leikmenn frá hvoru liði inná hverju sinni. Hvert lið er skipað allt að 10 þátttakendum og eru frjálsar skiptingar allan leiktímann. Notast verður við hina margrómuðu „Futsal bolta“ sem eru sérhannaðir boltar fyrir innanhúsknattspyrnu. Enn hefur lengd leikja ekki verið ákveðin en hún verður ákveðin þegar fjöldi liða á mótinu liggur fyrir.
Verðlaunin verða í boði Icelandair og eru ekki af verri endanum, ásamt því að farandbikar er fyrir efsta sætið. Verðlaunaafhending fer fram strax og úrslit liggja fyrir en áætluð mótslok eru um klukkan 16:30.
Þátttökugjald er 100 dKr á mann og innifalið í þeirri upphæð er öl og samlokur á laugardeginum, fyrir utan þátttökuréttinn á mótinu.
Skráningarfrestur er til 14. Febrúar næstkomandi.
Frekari upplýsingar sem og móttaka skráninga í mótið eru veittar með því að senda skeyti á isborgdk@gmail.com
Kærar kveðjur,
Boldklubben Isborg og Icelandair |