Fréttir‎ > ‎

Bjórbolti og peysur

indsendt 14/08/2011 07.22 af Boldklubben Isborg

Næstkomandi laugardag (20. ágúst) kl. 14 mun fara fram bjórbolti, eftir boltann borðum við saman (pulsur eða pizzur, ákveðið þegar nær dregur). Þáttökugjald er 50 dkr. fyrir þá sem hafa borgað árgjaldið hjá Ísborg, en 100 dkr. fyrir aðra. Innifalið í því er bjór á meðan boltinn stendur yfir og byrgðir endast, einnig matur.

Skráningarmenn munu ganga í hús á mánudaginn eða þriðjudaginn og taka við skráningum, einnig er hægt að hafa samband við Vidda eða Einar ef þið búið ekki á kolleginu. Greiðslur og skráning fyrir bjórboltann verða að hafa borist til Vidda eða Einars fyrir n.k. fimmtudag.

Einnig verða Ísborgar peysur pantaðar bráðlega og hægt að hafa samband við Einar varðandi þær, en peysa mun kosta 220 dkr.