|
Föstudaginn 27. Janúar n.k. verður aðalfundur Boldklubben Isborg haldinn á barnum á Kagså kollegíinu. Fundurinn hefst stundvíslega klukkan 20:30 og verður boðið upp á létta drykki á meðan fundi stendur.
Eins og árlega verður kosið í eftirfarandi nefndir og stöður á fundinum:
Formaður Gjaldkeri Ritari
Umsjónarmaður knattspyrnu karla x 2 Umsjónarmaður kvennadeildar Umsjónarmaður körfuboltadeildar Umsjónarmaður barnaskopps x 2 Umsjónarmaður spiladeildar
Framboð í eftirfarandi stöður tilkynnist í síðasta lagi miðvikudaginn 25. Janúar n.k. á isborgdk@gmail.com
Við hvetjum alla félagsmenn til að mæta á Aðalfundinn!
Með kveðju,
Stjórn Ísborgar |
