Ísborg vs. FC Komfort (Ísborg vs. Prtizan Kaukasus)
Lið Ísborgar var þannig skipað:
Einar Ingólfs
Hilmar Benni Fróði
Bjössi Gústi
Hermann
Bekkur: Pétur, Gylfi,
Hannes
Leikurinn fór fram á
heimavelli okkar í Hammergårdskole eins og vanalega. Aðstæður voru fínar völlurinn í
góðu ástandi, en kannski aðeins of mikil hreyfing á logninu í þetta skiptið. FC Komfort var í
fyrsta sæti deildarinnar fyrir leikinn einu stigi fyrir ofan Ísborgu og höfðu
þeir leikið einum leik fleiri. Þannig var ljóst að hart yrði barist enda
tveggja stiga forskot á toppnum í húfi fyrir okkar menn.
Leikurinn byrjaði strax
með látum og virtust gestirnir sprækir og vel spilandi. Eftir að heimamenn
höfðu átt tvö fín færi til þess að komast yfir náðu gestirnir forystu eftir nokkrar snarpar sóknir. Markið
kom eftir sjálfsmark okkar manna og er algjör óþarfi að vera að nefna nein nöfn
tengt því enda ekki víst að Hilmar verði sáttur við það. Eftir þetta sóttu
okkar menn í sig veðrið og spiluðu fínan fótbolta sem skilaði okkur góðu
marki frá Bjössa eftir frábæran sprett frá Pétri upp hægri kantinn. Þegar fimm
mínútur voru eftir af fyrri hálfleik var Hermanni og einum liðsmanni gestanna
vikið af velli eftir létta glímu og voru því bæði lið einum færri það sem eftir
lifði leiks.
Síðari hálfleikur hófst
með miklum krafti hjá okkar mönnum og var gott flæði í spilamennsku okkar.
Færin voru opin og þónokkur en ekki vildi boltinn í netið, sérstaklega ekki hjá sumum. Þegar um 15 mínútur
voru eftir af leiknum fékk Hermann sitt annað gula spjald og þar með rautt
fyrir að skora mark með hönd guðs sem var ekki samþykkt á einhvern óskiljanlegan hátt. Næstu fimm mínútur
voru okkar mönnum mjög erfiðar og lágu andstæðingarnir þungt á okkur þar til
einn af þeirra mönnum fékk einnig sitt annað gula spjald og jafnt var í liðum á
ný. Eftir það má segja að heimamenn hafi haft yfirhöndina og þegar um fimm
mínútur voru eftir af leiknum náði Gústi skora sigurmarkið með miklu harðfylgi.
Rétt áður en ágætis dómari leiksins flautaði til leiksloka fengu gestirnir
dauðafæri eftir misskilning í vörninni en Einar varði glæsilega og staðfesti að
þar með að toppsætið væri okkar.
Lokatölur 2-1
Mörk: Bjössi og Gústi
Sjálfsmark: Hilmar :)
Rautt: Hermann
Maður leiksins: Það koma
nokkrir til greina, en að mati undirritaðs er það Einar. Einar færði sig af
miðjunni í markið í þessum leik og stóð sig með mikilli prýði þrátt fyrir að
hafa ekki sett á sig hanskana í langan tíma.
Áfram Ísborg, alltaf,
allsstaðar
(Leikskýrslan sem
gleymdist)
Ísborg vs. Partizan
Kaukasus
Liðið var eftirfarandi
Egill
Hilmar Benni Einar Ingólfs
Gústi Bjössi
Hermann
Bekkur: Pálmi, Gylfi,
Hinrik
Leikurinn var allan tíman
í höndum Ísborgarmanna sem leiddu 3-0 í hálfleik. Í síðari hálfleik í stöðunni
4-0 fékk Gústi gult spjald fyrir að reyna að hlaupa í gegnum markmann
andstæðingana. Einum fleiri gengu gestirnir á lagið og náðu að minka forskotið í
4-2. Eftir að Ísborgarmenn fengu fullskipað lið að nýju var enginn spurning hvert stefndi og
komumst við í 6-2 áður en þeir klóruðu í bakkann undir lok leiksins.
Lokatölur: 6-3
Við biðjumst velvirðingar
á því hversu ónákvæm þessi skýrsla er, en hún bara gleymdist J
Mörk: Hermann 4, Bjössi 2
Maður leiksins: Hermann