Boldklubben Isborg er íþróttafélag í Kaupmannahöfn. Félagið hefur það eitt að markmiði að bjóða upp á aðstöðu fyrir góða hreyfingu og góðan félagsskap, fyrir bæði kyn og alla aldurshópa.
Það er stefna Ísborgar að vera í sívirku sambandi við þá sem taka þátt. Félagið mun stofna nýjar deildir ef fram koma aðilar sem vilja verja tíma og metnaði í skemmtilega hluti. Ef þú vilt vera með í þessum skemmtilega félagsskap er fyrsta skrefið að hafa samband. Það eru miklir kraftar innan Isborgar og þú ert velkomin/nn í hópinn.
Aðalstyrktaraðili Ísborgar er Icelandair og hefur verið unnið gott samstarf þar á milli til margra ára.

Fréttir

  • Icelandair Open 2012 Laugardaginn 18.febrúar 2012 mun Boldklubben Isborg í samstarfi við Icelandair í Kaupmannahöfn standa fyrir Icelandair Open hraðmótinu í innanhúss knattspyrnu, áttunda árið í röð. Tilgangur Icelandair Open er að ...
    Sendt 15/01/2012 05.32 af Boldklubben Isborg
  • Aðalfundur Boldklubben Isborg 2012 Föstudaginn 27. Janúar n.k. verður aðalfundur Boldklubben Isborg haldinn á barnum á Kagså kollegíinu. Fundurinn hefst stundvíslega klukkan 20:30 og verður boðið upp á létta drykki á meðan ...
    Sendt 15/01/2012 05.30 af Boldklubben Isborg
  • Bjórbolti og peysur Næstkomandi laugardag (20. ágúst) kl. 14 mun fara fram bjórbolti, eftir boltann borðum við saman (pulsur eða pizzur, ákveðið þegar nær dregur). Þáttökugjald er 50 dkr. fyrir þá sem hafa ...
    Sendt 14/08/2011 07.23 af Boldklubben Isborg
Viser post 1 - 3 af 13. Vis flere »

Sign in  |  Recent Site Activity  |  Terms  |  Report Abuse  |  Print page  |  Powered by Google Sites